1. Núna erum við búin að eyða tveimur dögum í hinni yndislegu San Francisco borg. Íbúðin sem við erum í er ótrúlega hugguleg og bara við hliðina á Alamo Square Park, þar er leikvöllur sem Lóa getur leikið sér á og útsýni yfr alla miðborg San Fran.

    Við byrjuðum á því að skoða Golden Gate Park, sem er hérna rétt hjá og alveg risa stór. Veðrið var flott, heiðskírt og um 18 stiga hiti, svo garðurinn var alveg stútfullur af fólki. Það er gaman að skoða mannlífið hérna, hér gerist allur andskotinn. Við sáum gamla kalla æfa bardagalistir, gamlar konur á hjólaskautadansæfingum, Swing dans kennslu, þar sem um 50 manns dansaði við skemmtilega tónlist, og allir tóku þá og dönsuðu við næsta mann. Garðurinn hefur upp á margt að bjóða. Við skoðuðum Conservatory of Flowers, þar sem Lóa hljóp á milli blómabeða. Þaðan kíktum við á De Young museum, stórstkemmtileg koparklædd bygging eftir Herzog & de Meuron og spókuðum okkur svo um í Japanska Tegarðinum á meðan Lóa svaf.

    Eftir það kíktum við á göturnar Height og Ashbury, sem er alveg stórskemmtilegt hippahverfi með flottum Vintage búðum og góðu kaffi. Garðar fékk sér flottan jakka, hann er heldur betur að fitta inn í hommaborigna.

    Í dag gengum við svo áfram um borgina í sólinni. Við kíktum á Lower Heights og  síðan í Mission hverfið þar sem við fengum okkur trylltan ís á Bi-Rite Creamery og skoðuðum hverfið. Héldum síðan niður í miðbæ þar sem við spjölluðum við nokkra heimilisleysingja, en hér er alveg nóg af þeim, fórum í Yerba garðinn og kíktum á SFMOMA safnið og keyptum þar ART FOR BABIES fyrir Lóu.

    Í kvöld hittum við svo Áu vinkonu okkar og kærastann hennar NIck á frábærum mexíkóskum vegan stað í Mission, sem Nick benti okkur á. Það er sko alveg óþarfi að borða hormóna- og pensilínsprautað kjöt þegar maður kemst í svona snilld.