1. Við eyddum öðrum degi í Sonoma þar sem við hjóluðum um vínekrur dalsins og smökkuðum á hágæða vínum. Maddý lærði nokkra takta meðal annars hvernig á að handleika rauðvínsglas til þess að ná fram rétta lit vínsins. Svo var smakkað. Við kvöddum svo Sonomadalinn, keyrðum í gegnum Napa dalinn og í átt til San Francisco. 

    Áður en við komum til San Fran kíktum við í enn einn skóginn, Muir woods. Muir woods er verndaðir rauðskógar (redwoods) sem er mjög nálægt þokuborginni. Búið er að túristavæða Muir woods svo að „villta lífið“ verði ekki fyrir skaða af mannfólkinu. Þannig er búið að búa til skemmtilega gönguleiðir í kringum tréin og saga og líffræðilegar upplýsingar um skógana eru um allt. 

    Frá Muir woods keyrðum við yfir Golden Gate brúna og til San Francisco. Stoppuðum og fengum okkur pizzu dagsins í Berkeley, hjá Cheeseboard Collective. Ruddalegar góðar sneiðar sem við snæddum þar og svo eyddum við drjúgum tíma í að finna ódýrt hótel. Enduðum á því að sjálfsögðu að keyra í gegnum slummið hjá Oakland og eyddum nóttinni á frekar skrítntu móteli við hliðina á flugvellinum þar.

    Núna erum við komin í miðbæ San Francisco, nánar tiltekið í huggulega viktóríska íbúð rétt hjá Alamo torgi, þar sem við munum eyða síðustu viku Ameríkuferðarinnar. Mælum með Airbnb.