Í dag keyrðum við með ströndinni til Mendocino, sem er alveg æðislegur bær við Kyrrahafsströndina, í fallegri náttúru. Eins konar “Skagen” sumarparadís hér á svæðinu. Þar var reyndar varptími hjá fuglunum svo við þurftum eiginlega að hlaupa á milli staða til að taka myndir, og svo aftur inn í bíl. Fuglarnir voru heldur engin kríugrey, heldur risastórir svartir fuglar á stærð við fálka, sem stungu sér niður í áttina okkur til að fæla okkur burt.
Þaðan keyrðum við í gegnum vínekrurnar í Mendocino County og ókum meðfram Russian River til Sonoma og Napa dalanna frægu, þar sem allt snýst um vín. Við ákváðum að taka Sonoma fyrst, það er svona meira afslappað svæði, þar sem hægt er að fara í lautarferðir um vínekrurnar og verðin eru aðeins viðráðanlegri, meira svona lokal allt saman og minni túrismi. Við erum hérna á ekta vínhóteli, með sundlaug og spa og alles, þvílíkur lúxus frá ógeðslegu mótelum síðustu vikna!
Við leigðum okkur hjól og hjóluðum um Sonoma um eftirmiðdaginn. Það var ekkert smá fallegt að hjóla hérna um á milli hóla og hæða í kringum vínekrur og bleika kirsuberjablómans. Litlu blómin sem vaxa þeirra á milli til að auka gæði jarðvegsins eru í fullum blóma núna og setja mikinn svip á landslagið. Við náðum að kíkja á tvo vínsmökkunarstaði og smökkuðum 5 vín á hvorum stað. Seinni staðurinn, Buena Vista, var með ótrúlega góð vín. Fyrst fengum við freyðivín sem kom mikið á óvart, síðan Chardonnay hvítvín, sem var alveg ótrúlega bragðmikið og gott. Þá fengum við Pinot Noir frá 2006 og 2007, þar sem hið seinna var mun bragðbetra og enduðum svo á Zinfandel frá 2007, sem er ein aðal Sonoma þrúgan, og loksins Merlot frá 2008 sem kom virkilega mikið á óvart. Við enduðum á að kaupa Merlot flöskuna, hún var sú eina sem við höfðum efni á eftir daginn hehehe…og líka mjög góð.
Flest vínin hérna er ekki hægt að fá í búðum og sérstaklega ekki heima, svo við ætlum að sanka að okkur nokkrum vínum til að taka með okkur heim, helst eina af hverri þrúgu. Annars endaði dagurinn bara í heitapottinum með Lóu sem er orðin mikill gourmet-isti.