1. Í gær keyrðum við frá Oregon fylki og suður til Kaliforníu fylkis. Við keyrðum aftur að Kyrrahafsströndinni með Hwy 1, og nutum útsýnisins og náttúrunnar þar. Það var gaman að sjá allan rekaviðinn sem prýðir ströndina. Sums staðar er sandurinn meira að segja svartur, svo þetta minnir mikið á Ísland. Allt er bara einhvern veginn miklu stærra!

    Síðan fórum við í Redwood Forest National Park til að dást að trjánum. Þessir Redwood skógar eru ótrúlegt fyrirbæri. Þeir hafa lifað af loftsteina, risaeðlur, ísaldir og hitastigsbreytingar, já eiginlega bara allar helstu raskanir jarðarinnar í hundrað þúsundir ára. Trén eru þau stærstu í heimi, hæð þeirra jafnast á við skýjakljúfa og breiddin er rosaleg. Það þyrfti amk 8 manns til að ná utan um þau stærstu.

    Við gengum spöl inn i skóginn, sem var alveg hreint ævintýralegur. Trén eru svo há að lítið ljós kemst niður og skógurinn er mjög dimmur. Þykk þokan gaf honum enn dularfyllri blæ. Í skóginum búa svartbirnir og fjallaljón, ásamt alls konar snákum og froskum. Við rákumst sem betur fer ekki á það, aðeins lítinn bamba í vegkantinum. Maddý var samt alveg skíthrætt við þetta allt saman og gólaði eins og fáviti á meðan við gengum um skóginn -til þess að fæla burtu kvikindin að eigin sögn.

    Núna erum við stödd á móteli við Kyrrahafsströndina, í litlum afskekktum bæ sem heitir Fort Bragg. Hér eru litlar vínekrur dreifðar um hlíðarnar, við ætlum að kíkja betur á þær á eftir.

Notes

  1. gardarstefansson posted this