1. Afsakið bloggleysið síðustu daga en við höfum verið upptekin í Portland, Oregon, þar sem við höfum gist hjá Viðari, frænda Garðars, og Andreu konu hans. Portland er stærsta borg Oregon en samtals um 2.2 milljónir manna búa þar og á nærliggjandi svæðum. Borgin er hreint út sagt algjör snilld og ein af skemmtilegustu áfangastöðum Ameríkuferðar okkar.

    Borgin samanstendur af skemmtilegum hverfum, góðum almenningssamgöngum og vingjarnlegu fólki. Hvarvetna má finna töff og öðruvísi verslanir, virklega góða veitingastaði, almenningsgarða, sjálfstæð kvikmyndahús, skemmtistaði og viðburði. Ástæðuna fyrir bloggleysi var fyrst og fremst vegna þessa: Við vorum hreinlega of upptekin að upplifa borgina ásamt gestgjöfum okkar Viðar og Andreu.

    Við mælum eindregið með því, þ.e. ef að þið stoppið einhvern tímann í Portland, að kíkja Powell bookstore (ein flottasta bókabúð veraldar), borða voodoo doughnuts (the magic is in the hole), drekka kaffi á the Fresh Pot (með betra kaffi sem við höfum drukkið), labba um á Hawthorne, fara á djammið í Portland á reiðhjólum og góla eins og sléttúlfur þegar miðnætti fer að nálgast og panta vegeterian pylsu á eþópískum veitingastað/rokkstað.

    Takk Andrea og Viðar fyrir frábærar stundir! Við áætlum að fara aftur í sérferð til Portland’s sem allra fyrst.

Notes

  1. gardarstefansson posted this