Við keyrðum til Salt Lake City í gær og kíktum á hjarta Mormóna trúarinnar á Temple Square. Salt Lake City er undarlegur staður og Mormónar hafa heljartak á borginni því í miðri borginni er risastórt svæði tileinkað þeirra trú og þar blasa við glæsilegar kirkjur og heilu háhýsin sem tilheyra The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints. Borgin gæti ekki verið í fallegra bæjarstæði en hún er við The Great Salt Lake og er umkringd stórbrotnum fjöllum.
Í mormónastemmningunni kíktum við í Visitor Center þar sem mormónastelpa eða “systir” frá Suður-Kóreu tók á móti okkur og fræddi okkur um trúnna. Ég tók vel í allt sem hún sagði og sagði við hana að Temple Square væri ástæðan fyrir því að við værum í Salt Lake City (þ.e. merkilegt að þessi trú/stofnun skuli vera jafn sterkt áhrifaafl í heilu Utah fylki). Maddý leist ekkert á blikuna og hélt að ég væri að fara skrá fjölskylduna í söfnuðuinn þannig að við stoppuðum stutt við hjá Suður-kóreisku systurinni og fengum okkur árbít í einum af fallegum görðum Mórmóna.
Frá Salt Lake City keyrðum til Idaho fylkis þar sem við sáum hina flotta Shoshone fossa sem eru rétt hjá Twin Falls bænum. Þessir fossar voru glæsilegir og það er merkilegt hversu mikil náttúrufegurð er að finna í Bandaríkjunum. Idaho minnti okkur mikið á Ísland. Lóa fékk útrás og fékk að hlaupa á túristasvæðinu í kringum fossinn, enda búin að vera drepast úr leiðindum í bílnum í þó nokkra tíma.
Við gistum svo á hóteli í höfuðborg Idaho, Boise, og stefnum á að keyra til Portland, Oregon, í dag að hitta Viðar frænda og Andreu konu hans þar sem við verðum í fjóra daga.