1. Í gær keyrðum við frá Gljúfrunum miklu og niður í Villta vestrið. Það er ótrúlegt hvað landslagið og náttúran er fljót að breytast hérna. Eina stundina vorum við stödd í snævi þöktum greniskógi og þá næst var maður staddur á rauðum og þurrum leirnum í Villta vestrinu.

    Það sem kom okkur á óvart var indíánasamfélagið hérna. Myndin af átökum glæstra indjána við kúreka, sem maður kannast við, er mjög fjarri raunveruleikanum. Hér eru það í rauninni þeir innfæddu sem eru kúrekarnir. Félagsleg vandamál blasa hvarvetna við, og hin gamla indjánamenning er orðin að söluvarningi. Fólkið býr í kofum byggðum úr vanefnum eða svona vinnuskúrum eins og við þekkjum heima. Einhverra hluta vegna eru samt 5-7 pallbílar við hvern kofa, bílana er greinilega auðveldara að verða sér úti um en þak yfir höfuðið.

    Við keyrðum í gegnum tvo bæji á leið okkar til Monument Valley, bæjina Tuba City og Kayenta. Því miður var það ekki skemmtileg upplifun og minnti hvað helst á þá þróun sem hefur orðið á Grænlandi, þetta er einskonar vanþróun og árekstrar vestræns samfélags við hina innfæddu og menningararfleifðina sem þeir búa yfir. Mjög leiðinlegt að sjá þetta. Í Kayenta vorum við áreitt af blindfullum innfæddum manni með kúrekahatt sem vildi betla af okkur 10 dollara. Við ákváðum að drulla okkur bara í burtu.

    Monument Valley, á mótum Arizona og Utah, var stórbrotinn, eins og öll náttúran hérna. Risastórir stólpar rísa úr jörðinni og mynda ótrúlegustu skúlptúra og form. Þetta var mjög fallegt. Þetta er staður sem hefur verið notaður í mörgum bíómyndum, t.d. Forrest Gump. Við keyrðum áfram inn í Utah, og það kom okkur á óvart hvað það er fallegt hérna. En þar er sömu sögu að segja og í Arizona. Samfélagið hérna er ótrúlega sorglegt og mikil fátækt og alveg ljóst að hér ræður mormónakirkjan ríkjum. Nátturan bætir þó upp fyrir eymdina hérna í suður Utah, risastórir rauðir klettar mynda ótrúlegustu form, alveg gullfallegt. Spanish Trail er ekkert smá fallegt svæði með rauðum klettum og gljúfrum á gömlum kúrekaslóðum. Það er mjög fyndið að sjá hestana hérna, þeir eru allir alveg jafnljótir og hesturinn hans Lukku Láka.

    Í dag keyrum við að Salt Lake City, frá öllum kúrekum/indjánum, það verður spennandi að sjá hvernig mormónarnir hafa það norðar í fylkinu.