1. Eftir ævintýralega nótt í Las Vegas, Nevada, þar sem við fjölskyldan keyrðum dauðþreytt um The Strip á laugardagskvöldi lögðum við snemma í hann á sunnudegi í átt til Grand Canyon (Gljúfrin miklu) í nágrannafylkinu Arizona. Farið var úr sumarfötunum og í vetrargallann. 

    Á leiðinni til Grand Canyon stoppuðum við hjá hinni heimsfrægu Hoover Dam sem byggð var á kreppuárunum í Bandaríkjunum. Þetta var stutt stopp, eiginlega svona “stop, take a picture, and get the hell outta here” móment. Engu að síður falleg stund og við náðum nokkrum góðum myndum úr bílnum.

    Grand Canyon eða Gljúfrin miklu eru gljúfur í Arizona fylki sem Colorada áin hefur mótað í gegnum aldirnar. Við keyrðum í ca. 4 tíma og enduðum í 2250 metra hæð yfir sjávarmáli þar sem við gistum í bjálkakofa á sjálfri gilsbrúninni! Það var vægast sagt ótrúleg lífsreynsla og Grand Canyon er eitt það merkilegast sem við höfum séð. Gljúfrin sjálf skapa einstaka stemmningu sem að erfitt er að lýsa í rituðu máli. Það ríkti dásamleg kyrrð og útsýnið var stórbrotið. Okkur leið alveg hreint yndislega þarna.

    Kannski var það stemmningin, eða vottur af háfjallaveiki, en þá minnti bjálkakofinn einstaklega mikið á hótelið úr Twin Peaks sjónvarpsþáttunum sem gerði þetta að einstaklega undarlegri upplifun, ekki síst þegar starfsfólkið var eins og ómyndarleg útgáfa af karakterunum úr þáttunum.