1. Eftir umferðaröngþveiti gærdagsins var ákveðið að taka smá frí í dag. Ferðinni var heitið til Santa Monica og var þar verslað aðeins ásamt því að fara í Tívolí sem var á bryggjunni Santa Monica Pier. Lóa fór í fyrsta skiptið í parísarhjól með útsýni yfir alla strandlengju Los Angeles. Eftir það gátum við ekki staðist mátið að fara á ströndina þannig að við ákvaðum að labba frá Santa Monica og yfir til Venice Beach.

    Lóa var alveg skíthrædd við sjóinn og hljóp lengst upp á land í hvert skipti sem að ný alda kom. Það endaði svo að Garðar þurfti að bera hana á háhesti í ca. 40 mínútna göngutúr til Venice Beach.

    Venice Beach er vægast sagt stórfurðulegt fyrirbæri og stórskemmtilegt líka. Helst bera að nefna þær furðulegu týpur sem ganga þar um og keppast við að efla flóru hverfisins. Maríjúanareykurinn fyllti loftið og masaðir karlar með smáhunda gengu um göturnar. 

    Svo var stoppað og fengið sér eitt besta kaffi sem við höfum prófað, en Rúnar Ingi Einarsson ástmaður Los Angeles borgar og kaffiunnandi, mældi sérstaklega með því. Staðurinn heitir  Intelligentsia.

    Á morgun kveðjum við L.A. og stefnum á Death Valley og Las Vegas.