Í gær keyrðum við suður til Los Angeles. Við byrjuðum daginn á því að heimsækja Solvang, sem er heldur betur sérstakur staður. Solvang er lítið bæjarfélag sem var stofnað af dönskum innflytjendum snemma á 19.öld. Bærinn hefur síðan þróast í eins konar danskt útópíuland, þar sem bindingsverkshús og vindmillur standa við blómaskreyttar götur með gömlum ljósastaurum og danska fánanum. Hvert einasta hús í bænum er í “dönskum stíl”, eða eins og Solvang túlkar hann, þá eru það steypt hús með ámáluðum trébitum sem líkjast bindingsverki og múraðri áferð þar á milli. Sökklarnir eru sums staðar hlaðnir úr rauðum múrstein, sem einhverra hluta vegna er holur og gefur frá sér tómahljóð.
Þetta litla gervisamfélag býður upp á alls konar “danskar” upplifanir, bakarí, bókahorn með H.C. Andersen ævintýrum og fríkadellur. Við stoppuðum þarna stutt og fengum okkur kaffi og eina barnabók. Þetta var mjög skondin og súrrealísk upplifun.
Eftir það keyrðum við með ströndinni og til Santa Barbara, eða Kalifornísku riveríuna. Við kíktum á Santa Barbara Mission, klaustrið og þar var 25°C og sól svo við skelltum okkur á ströndina með Lóu og skoðuðum gömlu trébryggjuna.
Síðan keyrðum við með fram Pacific Hwy, í gegnum Malibu, þar sem Hollywood stjörnurnar eiga glæsivillur og einkaströnd. Öll strandlengjan var troðfull af brimbrettaköppum. Þarna sáum við líka bækistöðvar Davids Hasselhoffs og félaga hjá strandvörðum.
Við enduðum svo daginn á því að keyra inn í LA, tékkuðum á Beverly Hills, Robertson Boulevard og Hollywood. Okkur fannst ekki mikið til koma, en umferðin hérna er ógeðsleg! Ekkert nema bíll við bíl alla borgina og það tekur allt upp í tvo tíma að komast á milli hverfa.
Garðar snillingur pantaði aftur hótelið, það var sama saga og síðast, hann fann mótel í aðalghettoinu í LA, Compton. Eða eins og N.W.A. túlkuðu það, Straight outta Compton.
Þetta er upplifun!