1. Í gær fórum við á Chelsea Market, en High Line fer þar í gegn. Þar er búið að breyta gamalli kexverksmiðju í húsnæði fyrir verslanir, bakarí, kaffihús, yoga- og líkamsræktarsali og skrifstofur. Vægast sagt þá er staðurinn heillandi og mikil upplifun í því að sjá gamalt verða að nýju. Inni á milli búðanna má sjá stálbitana og hrátt gólfið sem er hluti af hinni upprunalegu verksmiðju sem eitt sinn var í þessu húsi.

    Maddý hrakfallabálkur slasaði sig á hnénu, og labbaði þess vegna haltrandi um Greenwitch Village þangað til við fundum teygjuband fyrir hana. Nú hoppar hún upp á 5.hæð hótelsins á hægri fæti með kerruna í vinstri hendi. Vorum að pæla í að nota fínu sjúkratrygginguna, en Maddý er þrjósk og vill frekar hoppa.

    Skoðuðum Washington Square Park og háskólasvæðið og löbbuðum síðan á lower east side til að skoða hipstera bæjarins. Enduðum svo daginn á 14th E  og Uninon Square og kíktum í búðir á 5th Avenue, en við búum á hornunu á 5th Av og 17th W, í hjarta borgarinnar og við allar aðalverslunargötunar.

    Enduðum svo daginn á því að fara í bókabúðina Barnes & Noble og keyptum barnabók fyrir Lóu, en þeir eru með frekar undarlegt úrval af barnabókum.

    Á eftir fljúgum við svo til San Francisco og allir eru voða spenntir fyrir því að komast í hitann.