1. Lóa vaknaði í gærmorgun kl. 04:30 þannig að við vorum komin út kl. 06:30 í leit að leikvelli svo hún gæti fengið smá útrás fyrir Brooklyn gönguferð sem var plönuð síðar um daginn. En okkur til mikillar undrunar þá voru allir leikvellir læstir og lokaðir á Manhattan! Sagði ekki einhver að New York væri borgin sem að aldrei svæfi?

    Þannig að við leituðum og leituðum að leikvelli og það endaði svo að barnið sofnaði í vagninum. Þá var farið og fengið sér kaffi á nálægum Diner. Eftir það gengum við í Soho þar sem Lóa vaknaði og fundum við þá loksins leikvöll þar sem hún gat spriklað aðeins.

    Við enduðum svo daginn á því að ganga yfir Brooklyn brúnna og fengum okkur pizzu á My Little Pizzeria sem komu á óvart. Hingað til höfum við eiginlega bara borðað pizzur í New York enda eru þær fáranlega góðar! Held að við munum fá okkur pizzu líka í kvöld.