1. Við röltum um götur New York borgar í gær og tókum helsta túristann á þetta. Empire State building, Times Square, Rockfeller Center, Central Park og High Line. Vorum stoppuð reglulega þar sem fólk hrósaði okkur fyrir sæta strákinn okkar og flotta gallan hans. Lói lék á alls oddi í Central Park, þessi heimsborgari. Ráfuðum í industrial hluta borgarinnar í leit að High Line og rákumst þar á allar helstu stereotýpur Amerískra bíómynda, írska gengið í leðurjökkum, ítalskættaðar feitar löggur með kleinuhringi og gangstera. Þarna var ekkert annað var í boði en Dunkin Doughnuts, svo við þrifumst á því hálfan daginn. Latte pabbinn Garðar fékk fyrsta menningarsjokkið þegar ekki var hægt að panta Caffe Latté, en náði sér fljótt á strik í Chelsea hommahverfinu þar sem við búum.

Notes

  1. gardarstefansson posted this